1500 flugu út dag hvern í nóvember

Dag hvern í nóvember fóru að meðaltali 1500 Íslendingar úr …
Dag hvern í nóvember fóru að meðaltali 1500 Íslendingar úr landi í gegnum Leifsstöð. mbl.is/Sigurgeir

Aldrei áður hafa jafn margir hér á landi nýtt nóvembermánuð til að ferðast til annarra landa og er fjöldi íslenskra farþega það sem af er 2016 nú kominn upp í hálfa milljón. Frá þessu er greint á ferðavefnum Túristi.is.

Rúmlega 45 þúsund Íslendingar flugu frá Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði og er það umtalsverð aukning frá gamla metinu, sem sett var í nóvember árið 2007 þegar nærri 41 þúsund íslenskir farþegar flugu af landi brott.

Að meðaltali ferðuðust því um fimmtán hundruð Íslendingar á degi hverjum úr landi frá Keflavíkurflugvelli í nóvember. Á ferðavefnum segir að sá fjöldi fylli um átta farþegaþotur af hefðbundinni stærð, en  samkvæmt talningum Túrista voru brottfarir frá Keflavíkurflugvelli á þessu tímabili að meðaltali 51 á dag. 

Ferðamálastofa hefur haldið úti talningum á brottförum Íslendinga frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar frá árinu 2004 og á þeim tíma hafa aldrei fleiri farið út en árið 2007 þegar fjöldinn náði nærri 470 þúsundum. Það met fellur hins vegar í ár, því í lok nóvember höfðu 495 þúsund íslenskir farþegar farið út og næsta víst er að í fyrstu viku þessa mánaðar hafi meira en 5 þúsund Íslendingar flogið frá Leifsstöð.

Þar með hafi meira en hálf milljón íslenskra farþega farið til útlanda í ár og var fjöldinn langmestur í júní, þegar rúmlega 67 þúsund landsmenn ferðuðust úr landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert