Úttekt gerð á starfsemi Matvælastofnunar

Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Tekin hefur verið ákvörðun um að gera úttekt á ýmsum þáttum er lúta að rekstri og starfsumhverfi Matvælastofnunar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu. Þar segir að Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafi falið þeim Bjarna Snæbirni Jónssyni stjórnunarráðgjafa og dr. Ólafi Oddgeirssyni dýralækni og framkvæmdastjóra ráðgjafafyrirtækisins Food Control Consultants Ltd. í Skotlandi að fara yfir þessi mál og gera úttekt á þeim.

„Þeir munu fara yfir verkferla Matvælastofnunar hvað varðar eftirlit með lögum um dýravelferð og matvælaeftirlit og greina starfsaðferðir og bera saman við það sem almennt gerist hjá sambærilegum stofnunum í Evrópu. Þá munu sérfræðingar ráðuneytisins fara yfir þau lög sem gilda um starfsemi stofnunarinnar, beitingu þeirra og greina hvort skortur á lagaúrræðum hamli því að stofnunin geti veitt almenningi og opinberum stofnunum upplýsingar úr eftirlitsskýrslum. Kristín Benediktsdóttir dósent við Háskóla Íslands mun verða ráðuneytinu til aðstoðar hvað varðar lagafyrirmæli er lúta að birtingum upplýsinga.“

Ennfremur verði gerð athugun á rekstri, skipulagi og stjórnun og hvernig ráðuneytið sinni almennum eftirlitsskyldum sínum með starfsemi Matvælastofnunar. „Loks er óskað eftir ábendingum um það sem betur má fara varðandi framangreinda þætti, tillögum um breytingar á lögum og öðru því sem telja má að geti eflt framkvæmd með lögum um dýravelferð og matvælaeftirlit.“ 

Gert er ráð fyrir að niðurstöður þessara athugana liggi fyrir í lok febrúar. Þá er í ráðuneytinu unnið að endurskoðun laga um Matvælastofnun og verður afraksturinn úr úttektinni meðal annars nýttur við þá lagasmíð segir ennfremur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert