Mikill ótti í fiskvinnslufólki

Um 300 manns starfa við fiskvinnslu í Eyjum núna og …
Um 300 manns starfa við fiskvinnslu í Eyjum núna og segir Arnar að verkfall sjómanna hafi mikil áhrif á atvinnulífið ef það dragist á langinn. mbl.is/Sigurður Bogi

Fiskvinnslufólk í Vestmannaeyjum streymir nú inn á atvinnuleysisskrá og í gær voru starfsmenn Drífanda stéttarfélags í Eyjum á haus við að aðstoða það við að skrá sig, að sögn Arnars G. Hjaltalín, formanns Drífanda.

Verkfall sjómanna, sem hófst síðasta miðvikudagskvöld, hefur víðtæk áhrif, bæði á störf til sjós og lands og stöðu Íslands á fiskmörkuðum. Flestar fiskvinnslur voru búnar að vinna þann afla sem þær áttu fyrir síðustu helgi.

Fjórar af sex fiskvinnslum í Vestmannaeyjum stöðvuðu vinnslu vegna hráefnisskorts fyrir helgi og hinar tvær, Vinnslustöðin og Ísfélagið, stöðva vinnslu í vikunni. Þegar hráefnisskortur er í fiskvinnslu heimila lög að starfsfólk sé tekið strax af launaskrá og geti skráð sig á atvinnuleysisskrá. Tekur sú skráning strax gildi, að því er fram kemur í umfjöllun um áhrif verkfalls sjómanna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert