Tveir skjálftar í Bárðarbungu

Bárðarbunga.
Bárðarbunga. mbl.is/Árni Sæberg

Tveir jarðskjálftar, sem mældust 3 og 3,1 stig, urðu í  Bárðarbunguöskjunni klukkan 9:36.  Engir eftirskjálftar hafa verið og engin merki sjást um gosóróa, samkvæmt upplýsingum frá jarðvársviði Veðurstofu Íslands.

Í gær mældist skjálfti upp á 3,5 stig í Eyjafirðinum en upptök hans voru 12,5 km suður af Grenivík.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert