Sjúkrabíll í forgangsakstri í árekstri

Sjúkrabíll í forgangsakstri lenti í árekstri á gatnamótum Miklubrautar og …
Sjúkrabíll í forgangsakstri lenti í árekstri á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarabrautar. mbl.is/Golli

Sjúkrabíll  sem var í forgangsakstri með sjúkling sem verið var að flytja á hjartagátt Landspítalans frá Ólafsvík lenti í árekstri á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautará tólfta tímanum.

Að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var annar sjúkrabíll strax sendur á vettvang og flutti hann sjúklinginn með hraði á hjartagáttina. Enginn slasaðist í árekstrinum en talsverðar skemmdir eru á sjúkrabílnum, að sögn ljósmyndara mbl.is sem átti leið um.

Sjúkraflutningamenn eru í óðaönn við að koma sjúklingum af landsbyggðinni til síns heima fyrir jólin og hafa þeir farið á nokkra staði það sem af er degi, svo sem í Stykkishólm og á Selfoss.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert