23 fái heiðurslaun listamanna

Alþingishúsið.
Alþingishúsið. mbl.is/Ómar

Alls­herj­ar- og menntamála­nefnd Alþingis hefur lagt til að 23 listamenn fái heiðurslaun samkvæmt ákvörðun þingsins.

Heiðurs­laun lista­manna voru veitt sam­kvæmt lög­um nr. 29/​1967 fram til 1991, þegar þau lög voru felld úr gildi en ný lög um lista­manna­laun, nr. 35/​1991, tóku við. Í hinum nýju lög­um var í fyrstu ekk­ert ákvæði um heiðurs­laun­in og samþykkti Alþingi því jafnan að veita þau frá ári til árs í tengsl­um við fjár­la­gaum­ræðu að hausti.

En ein­ing náðist á Alþingi vorið 2012, um að setja loks lög um heiðurs­laun lista­manna og tóku þau gildi í sept­em­ber sama ár. Í nýju lög­un­um er sett þak á fjöld­ann, 25 lista­menn fái ár­lega heiðurs­laun sem skuli vera jafn­há starfs­laun­um lista­manna og veitt að fullu til 70 ára ald­urs, en eft­ir það séu þau 80% af starfs­laun­um.

Eins og áður kom fram hefur nefndin lagt til að 23 manns fái heiðurslaun listamanna. Þeir eru eftirfarandi:

  1. Atli Heim­ir Sveins­son
  2. Erró
  3. Guðberg­ur Bergs­son
  4. Guðrún Ásmunds­dótt­ir
  5. Hann­es Pét­urs­son
  6. Hreinn Friðfinns­son
  7. Jóhann Hjálm­ars­son
  8. Jón Nor­dal
  9. Jón Sig­ur­björns­son
  10. Jón­as Ingi­mund­ar­son
  11. Jórunn Viðar
  12. Krist­björg Kj­eld
  13. Magnús Páls­son
  14. Matt­hías Johann­essen
  15. Megas
  16. Sig­urður A. Magnús­son
  17. Steina Vasul­ka
  18. Vigdís Gríms­dótt­ir
  19. Vil­borg Dag­bjarts­dótt­ir
  20. Þor­björg Höskulds­dótt­ir
  21. Þor­steinn frá Hamri
  22. Þrá­inn Bertels­son
  23. Þuríður Páls­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert