Þörf á að endurskoða peningastefnuna

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra, segir ekki unað við ríkisstjórnleysi til …
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra, segir ekki unað við ríkisstjórnleysi til langframa, enda bíði stór mál meðferðar þingsins. mbl.is/Árni Sæberg

Endurskoðun peningastefnunnar er eitt af þeim verkefnum sem býður Alþingis Íslendinga. Þetta kom fram í áramótaávarpi Sigurðar Inga Jóhannssonar forsætisráðherra. Seðlabankinn hafi haldið vöxtum of háum í landinu, bæði í kreppu og uppgangi og þörf sé á að endurskoða peningastefnuna heilstætt og hvort núverandi kerfi sé best til þess fallið að viðhalda lágri verðbólgu og stöðugleika.

Sigurður Ingi sagði lýðræðislegar leikreglur landsins hafa tryggt stöðugleika og samfellu, þó enn hafi  ekki verið mynduð ríkisstjórn eftir kosningarnar í október.   

„Ég hef ekki orðið þess var að þjóðfélagið hökti af þeim sökum. Það er athyglivert að sjá, hvernig Alþingi hefur starfað við þessar aðstæður. Og ég held að það megi fullyrða að því hafi tekist ágætlega upp í þeim verkefnum sem fyrir því lágu þegar það kom að nýju saman í byrjun desember,“ sagði í forsætisráðherra í ræðu sinni. Samtalið hafi orðið öðruvísi en ella og minna um hefðbundin átök stjórnar og stjórnarandstöðu í umræðu um fjárlög og önnur mál við þinglok.

Ekki unað við ríkisstjórnleysi til langframa

Lýðræðinu sé þó ekki best þjónað með samheldni og samstöðu um alla hluti. „Skoðanaskipti og mismunandi áherslur eru nauðsyn hverju samfélagi til að ná fram bestri niðurstöðu. Svo ekki verður við ríkisstjórnarleysi unað til langframa.“

 Stór mál sem séu framundan, sem alþingi verði að takast á við eigi að tryggja hagsæld á komandi árum. „Sú vinna verður að fara fram á vettvangi framkvæmdavaldsins, undir pólitískri leiðsögn ráðherra.“ 

Ísland hafi nú búið við viðskiptaafgang í 8 ár samfleytt, sem sé met, þar sem þjóðin hafi almennt búið við viðskiptahalla frá stofnun lýðveldisins. „Við höfum einnig borið gæfu til þess að nýta góðærið til þess að greiða upp erlendar skuldir þjóðarinnar og safna digrum gjaldeyriseignum.  Nú í haust gerðist það í fyrsta sinn frá lokum seinna stríðs að erlendar eignir landsmanna reyndust meiri en skuldir okkar erlendis. Þetta eru svo sannarlega tímamót í hagsögu Íslands.“

Forsætisráðherra sagði þá forsjálni ekki aðeins vera bundna við ríkissjóð, því heimili og fyrirtæki hafi einnig lækkað sína skuldastöðu á undanförnum árum og búið með því í haginn fyrir framtíðina.

Aðgæslu þörf á uppgangstímum

„Það er svo að á uppgangstímum er sérstakrar aðgæslu þörf. Það þarf sterk bein til þess að þola góða daga segir gamalt máltæki. Okkur hefur því miður sjaldan auðnast að nýta uppgangstíma til að safna til mögru áranna. Oft höfum við farið fram úr okkur þegar hlutirnir hafa gengið okkur í haginn með of mikilli eyðslu sem síðan hefur leitt til þenslu og verðbólgu. Þessi hætta er einnig til staðar nú,“ sagði Sigurður Ingi og sagði alþingis nú bíða endurskoðun á peningastefnunni.

„Vextir eru of háir á Íslandi. Seðlabankinn hefur haldið þeim of háum hvort sem er í kreppu eða uppgangi. Það þarf að skoða peningastefnuna heildstætt og hvort hún þarfnist endurskoðunar eða hvort núverandi kerfi sé best til þess fallið að viðhalda lágri verðbólgu og stöðugleika. Ég er þeirrar skoðunar að stöðugt gengi krónunnar skipti mestu máli til þess að viðhalda langtíma stöðugleika í efnahagslífinu. Og í mínum huga er of mikil gengishækkun álíka skaðleg og gengislækkun,“  sagði forsætisráðherra og kvaðst óttast að sagan í vaxtamálum frá því fyrir hrun endurtaki sig með tilheyrandi búsifjum.

Gengi krónunnar hafi hækkað um tugi prósenta á aðeins nokkrum árum og stefni nú hraðbyri á sömu slóðir og fyrir 2008.

„Hættan við slíka hávaxtastefnu er sú að það verði ávallt of eða van á gjaldeyrismarkaði – annað hvort sé of miklu fjármagni veitt inn í landið, eða flutt frá því. Gengi krónunnar verði þar af leiðandi annað tveggja; alltof hátt eða alltof lágt. Það er alveg skýrt í mínum huga að við getum aldrei tryggt langtíma atvinnuuppbyggingu ef samkeppnishæfni útflutningsgreina rokkar til um tugi prósenta á milli ára.

Krafa um sjálfbærni hvílir á þjóðinni

Við þurfum að leita nýrra lausna í peningamálum og nýrrar samstillingar í hagstjórn þar sem ekki er ofuráherslu á vexti líkt og verið hefur hin síðari ár heldur verði hugað að mörgum þáttum samtímis. Ég gæti nefnt þætti líkt og aðhald í ríkisfjármálum, sjóðasöfnum hins opinbera og einnig ýmislegt annað sem hefur verið tengt við hugtakið þjóðhagsvarúð þar sem meðal annars er hugað að útlánum fjármálastofnana. Það er gríðarlega mikilvægt að við grípum í taumanna strax og komum í veg fyrir frekari gengisstyrkingu sem mun gera íslenska framleiðslu ósamkeppnishæfa í útlöndum. Við þurfum lægri vexti en aukið aðhald í gegnum önnur hagstjórnartæki.“   

Jöfnuður skipti þjóðfélagið ekki síður máli „og þessi ríkisstjórn sem ég er í forsvari fyrir hefur stigið mikilvæg skref í þá átt.“

Á Íslandi séu miklir möguleikarnir á að gera gott samfélag betra. „Landið er stórt og ríkt af eftirsóttum auðlindum, íbúarnir fáir. En við getum ekki og megum ekki láta greipar sópa um gnægtaborð eins og enginn sé morgundagurinn. Sjálfbærni er sú krafa sem hvílir á okkur öllum og hafa ber í huga þegar við göngum um landið okkar eða miðin.“

Mesti auður Íslendinga sé þó vel menntuð og heilbrigð þjóð. „Framtíð okkar er unga fólkið, velferð þess og umhverfi,“ sagði Sigurður Ingi og bætti við að alþjóðleg samkeppni væri um þennan auð.

„Við sjáum líka að margir vilja koma til Íslands og vinna. Allt það góða fólk er okkur nauðsyn til þess að takast á við og nýta okkur þær aðstæður sem eru í efnahagslífinu. Margt af því vinnur störf sem við kærum okkur ekki um, teljum kannski of léttvæg eða ómerkileg. En ég hygg að flestir myndu verða varir við það með áþreifanlegum hætti ef þeir fjölmörgu útlendingar sem hér starfa myndu hverfa til síns heima. Það sama á við um erlenda sérfræðinga sem hingað koma og vilja koma hingað. Við þurfum að taka vel á móti fólki, en samtímis gera þá kröfu að eðlileg aðlögun eigi sér stað. Allir sem hingað vilja koma til að gera gott þjóðfélag betra, eiga að vera velkomnir.“   

Raunveruleg hætta á að íslenskan deyi út

Forsætisráðherra gerði líka stöðu íslenskunnar að umtalsefni og kvaðst stundum velta fyrir sér hvort nú sé svo komið að raunveruleg hætta sé á að íslenskan muni í fyrirsjáanlegri framtíð láta svo á sjá, að henni verði ekki bjargað? „Sagt hefur verið að raunveruleg hætta sé á því að íslenska verði ekki til eftir 100 ár.“

Þegar fræðimenn tali á þann veg að raunveruleg hætta sé á að íslenskan deyi út, sé hins vegar rétt að leggja við hlustir. „Nefnt hefur verið að það þurfi um einn milljarð króna á næstu tíu árum til að þróa samvinnu tungumáls og stafrænnar tækni. Að öðrum kosti bíði íslenskunnar hnignun í tæknisamfélaginu. Þótt vissulega megi segja að einn milljarður sé há upphæð, þá hygg ég að hún sé lág þegar haft er í huga hvað í húfi er.“  Hafa þurfi hugfast að það sé „sameiginleg tunga sem tengir okkur órofa böndum. Tungan gerir okkur að þjóð, hvar við niður komin í veröldinni.“ 

Umhverfismál séu líka meðal þeirra gæða sem huga verði að, enda hafi Ísland undirritað Parísarsamninginn ásamt yfir 160 öðrum ríkjum og samningurinn hafi verið fullgiltur á Alþingi í haust, sem marki tímamót og veiti von.

„Það má ekki dyljast neinum að það verður töluvert átak að ná þeim metnaðarfullu markmiðum sem sett hafa verið, en þeim verður ekki náð nema allir leggi sitt af mörkum. Verkefnin í Sóknaráætlun loftslagsmála miða að því að virkja sem flesta og finna skynsamlegar lausnir. Það hefur orðið vitundarvakning í þjóðfélaginu og ég skynja að okkur hefur orðið ágengt. Ísland á að vera í hópi ríkja sem eru fremst í flokki í loftslagsmálum, hvort sem það er í notkun endurnýjanlegrar orku og loftslagsvænum lausnum heima fyrir, eða í alþjóðlegri samvinnu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert