Meint dýraníð kært til lögreglu

Í nýjum lögum um velferð dýra sem tóku gildi 1. …
Í nýjum lögum um velferð dýra sem tóku gildi 1. janúar 2014 var í fyrsta sinn bundið í lög bann við kynferðislegri misnotkun á dýrum. mbl.is/Skapti

Matvælastofnun hefur kært til lögreglu meinta kynferðislega misnotkun á hrossum í hesthúsi á höfuðborgarsvæðinu um jólin. Ummerki á staðnum gáfu tilefni til að rannsaka hvort brotið hafi verið gegn ákvæðum dýravelferðarlaga um samræði eða önnur kynferðismök við dýr.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.

Þar segir enn fremur, að í nýjum lögum um velferð dýra sem tóku gildi 1. janúar 2014 hafi í fyrsta sinn verið bundið í lög bann við kynferðislegri misnotkun á dýrum. Í 15. gr. laganna er lagt á sérstakt bann við að ofbjóða kröftum dýrs eða þoli, yfirgefa dýr í bjargarlausu ástandi, hafa samræði eða önnur kynferðismök við dýr, nota lifandi dýr sem fóður, agn eða sem skotmark við skotæfingar eða skotkeppni, etja dýrum saman til áfloga, þvinga fóður eða vatn ofan í dýr nema nauðsynlegt sé vegna læknismeðferðar og að misbjóða dýrum á annan sambærilegan hátt.

Eigendur hrossanna tilkynntu málið til Matvælastofnunar. Enginn liggur undir grun að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert