Ný ríkisstjórn snúi við blaðinu

Alþingi við Austurvöll.
Alþingi við Austurvöll. mbl.is/Eggert

Alþýðusamband Íslands segir að forgangsröðunin sem birtist í nýsamþykktum fjárlögum muni ekki styðja við efnahagslegan stöðugleika og stuðla að félagslegri velferð og auknum jöfnuði.

„Á alla mælikvarða ríkir þensla í íslensku hagkerfi og víða má sjá merki um ofhitnun. Þessar aðstæður kalla á vandaða hagstjórn sem tryggir að ríkisfjármálin auki ekki ofþenslu og óstöðugleika og vinni á móti peningamálastefnu Seðlabankans. Að öðrum kosti verða afleiðingarnar og viðbrögðin fyrirsjáanleg. Verðbólga eykst, vextir hækka og gengi krónunnar styrkist enn frekar,“ segir á vefsíðu ASÍ.

„Bæði Seðlabankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa bent á að ef tekið sé tillit til stöðu hagsveiflunnar sé slaki í ríkisfjármálum um þessar mundir, þvert á allar ráðleggingar.“

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Byggir á þensluhvetjandi aðgerðum

Þar kemur fram að ríkisfjármálastefna síðustu ára, sem sé viðhaldið í nýsamþykktum fjárlögum, byggi á þensluhvetjandi aðgerðum á tekjuhliðinni og aðhaldsaðgerðum á útgjaldahliðinni.

„Skuldalækkunaraðgerðir og skattkerfisbreytingar á borð við afnám auðlegðarskatts, lækkun veiðigjalda og lækkanir á neyslusköttum og tollum hafa valdið því að tekjustofnar ríkisins duga ekki til að fjármagna nauðsynleg útgjöld eins og til heilbrigðismála, barna- og vaxtabóta, húsnæðismála og innviðauppbyggingar. Þessi stefna, sem byggir á því að nota aðhald í velferðarkerfinu sem helsta hagstjórnartækið, er illa til þess fallin að treysta hinn félagslega stöðugleika og stuðla að réttlátri tekjuskiptingu,“ segir á vefsíðunni.

„Koma í veg fyrir endurtekin mistök“

Þar kemur einnig fram að ný ríkisstjórn hafi tækifæri til að snúa við blaðinu og „koma í veg fyrir að dýrkeypt mistök fyrirhrunsáranna verði endurtekin“.

Til þess þurfi að beita ábyrgri hagstjórn sem notar ríkisfjármálin skynsamlega til að vinna gegn ofþenslu og til að fullfjármagna velferðarumbætur.

„Samspil þessara þátta skiptir sköpum í viðleitni aðila vinnumarkaðarins við að skapa sátt um nýja nálgun við gerð kjarasamninga, en óvissa og niðurskurður í velferðarmálum mun hamla slíkri vinnu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert