Skoða takmarkanir á jarðeign útlendinga

Gunnar Bragi Sveinsson tekur af skarið eftir að umræður spruttu …
Gunnar Bragi Sveinsson tekur af skarið eftir að umræður spruttu um erlent eignarhald á jörðum. mbl.is/Árni Sæberg

Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að skipa þriggja manna starfshóp til að leggja mat á það hvaða takmarkanir komi helst til greina til að viðhalda ræktanlegu landbúnaðarlandi og búsetu í sveitum landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. 

Í tilkynningunni segir að nokkur umræða hafi verið í þjófélaginu um árabil varðandi kaup erlendra aðila á bújörðum hér á landi og dæmi séu um að sami aðili hafi keypt margar jarðir á stóru svæði án þess að þar sé fyrirhuguð búseta eða að ræktanlegt land sé nýtt. 

Hópnum er jafnframt ætlað að skoða þær takmarkanir sem er að finna í löggjöf nágrannalanda Íslands eins og Noregs, Danmörku og Möltu og rúmast innan marka EES-samningsins. Í dönsku jarðalögunum er m.a. eignarhald á landbúnaðarlandi takmarkað og skilyrði sett fyrir kaupum erlendra ríkisborgara.  Þá mun hópurinn gera tillögu til ráðherra um nauðsynlegar breytingar á lögum í samræmi við framangreint.

Hópurinn verður skipaður þremur fulltrúum; einum tilnefndum af innanríkisráðherra, einum tilnefndum af Bændasamtökum Íslands en formaður hópsins verður skipaður af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra án tilnefningar. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum eigi síðar en í júní 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert