Lítil lyfjanotkun í íslenskum landbúnaði

Gunnar Bragi Sveinsson.
Gunnar Bragi Sveinsson. mbl.is/Árni Sæberg

Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp til að móta hvernig betur megi koma upplýsingum um sýklalyfjanotkun við framleiðslu matvæla úr dýraríkinu á framfæri við neytendur.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunaráðuneyti. Markmið með þessari vinnu er að upplýsa neytendur um þá eftirsóknarverðu stöðu sem íslensk matvælaframleiðsla býr við vegna lítillar sýklalyfja- og varnarefnanotkunar í íslenskum landbúnaði og fiskeldi samanborið við önnur lönd. Auk þess er hreinleiki vatns og lofts á Íslandi með því besta sem gerist.

Starfshópnum er ætlað að taka saman upplýsingar um sýklalyfjanotkun við framleiðslu matvæla úr dýraríkinu bæði hér á landi og í okkar helstu viðskiptalöndum. Hópurinn mun jafnframt koma með tillögur um hvernig best sé að koma þessum upplýsingum á framfæri við neytendur og hvaða hætta getur stafað af mikilli sýklalyfjanotkun, t.d. varðandi fjölónæmar bakteríur.

Hópurinn verður skipaður fimm fulltrúum; einum tilnefndum af Neytendasamtökunum, einum tilnefndum af Bændasamtökum Íslands, einum tilnefndum af Matvælalandinu Ísland og tveimur sem tilnefndir eru af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili af sér tillögum sínum eigi síðar en 1. mars 2017.

Sýklalyf eru lítið notuð í íslenskum landbúnaði og fiskeldi samanborið …
Sýklalyf eru lítið notuð í íslenskum landbúnaði og fiskeldi samanborið við önnur lönd. Ljósmynd/atvinnuvega- og nýsköpunaráðuneyti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert