„Þetta er magnað og harðduglegt fólk“

Guðmundur að störfum við tökur á kvikmynd sinni Fjallkóngar.
Guðmundur að störfum við tökur á kvikmynd sinni Fjallkóngar.

Guðmundur Bergkvist segist hafa orðið alveg heillaður af sauðfjárbændum í Skaftártungu sem hann fékk að fara með í nokkrar fjallferðir í stórbrotinni náttúrufegurð. Hann frumsýnir á morgun heimildarmynd sína, Fjallkóngar, sem er fyrst og fremst mynd um fólk, en ekki kindur. Guðmundur segir fólk hafa tekið góðan tíma í að hleypa honum að sér. Hann var fimm ár að vinna að myndinni.

Það er eitthvað þarna austurfrá sem togar mig alltaf aftur þangað. Ég fór á hverju ári að veiða í Tungufljótinu og ég sæki mikið á þetta svæði, samt er ég ekki tengdur því neinum fjölskylduböndum og var ekki í sveit þar sem ungur drengur. Mín fyrstu kynni af fólkinu í Skaftártungu voru í gegnum störf mín sem tökumaður hjá Rúv, þegar ég var sendur austur til að mynda og taka viðtal við Dóra fjallkóng. Hann er reglulega í fréttunum þegar Skaftárhlaupin koma, því jörðin hans Ytri-Ásar liggur nálægt Skaftá og Eldvatni. Ég fékk hugmyndina að myndinni minni einmitt út frá kynnum mínum af Dóra, sem er stórkostlegur persónuleiki. Mér fannst þessi veröld öll svo spennandi og fólkið sem tilheyrir henni,“ segir Guðmundur Bergkvist kvikmyndagerðarmaður sem frumsýnir heimildarmynd sína, Fjallkóngar, á morgun, fimmtudag. Hún fjallar um sauðfjárbændur í Skaftártungu og þar er fylgst með lífi þeirra á nokkurra ára tímabili.
Heiða á Ljótarstöðum færir til tætluna í heyskap að sumri.
Heiða á Ljótarstöðum færir til tætluna í heyskap að sumri.

„Það stóð ekki til í upphafi að taka fimm ár í að gera myndina, en ég fór þrisvar á fjall með þessu fólki og þar fyrir utan myndaði ég það við störf sín á öllum árstímum. Fókusinn í myndinni er vissulega á fjallferðir, af því að afrétturinn er það sem sameinar þetta fólk. Þau eru öll í sauðfjárrækt og til að geta verið í því af alvöru þá verður fólk að hafa afrétt til að reka féð á yfir sumarið. Og þá verður fólk líka að sameinast um afréttinn og standa saman í fjárleitum, þó að allt logi kannski í illdeilum undir niðri,“ segir Guðmundur og hlær.

„Það mátti litlu muna að ég dræpi mig“

Guðmundur segir að hann hafi eignast marga góða vini í fólkinu sem er í myndinni hans.

„Ég varð alveg heillaður af þessu öllu saman, að fara með þeim á fjall og kynnast þeim öllum svona vel. Nú fer ég á þorrablótin í sveitinni og hvað eina,“ segir hann og hlær alsæll.

Gísli Halldór Magnússon bóndi á Ytri Ásum.
Gísli Halldór Magnússon bóndi á Ytri Ásum.

„Þetta var mikil langferð hjá mér, þessi fimm ár, og rosalega erfitt á köflum, ég lenti í öllum andskotanum. Ég lenti tvisvar í brjáluðu veðri, í annað skiptið var það mannskaðaveður, þá fórst erlendur ferðamaður nokkra kílómetra frá þar sem við vorum. Ég fauk út af á fjórhjólinu og mátti litlu muna að ég dræpi mig. Ég kom þarna í upphafi tökuferlisins í fjárskaðaveðrinu haustið 2012, þá var brjálæðislega hvasst og ég var á byrjunarreit í kynnum mínum af þessu fólki. Menn voru ekkert alveg á því að hleypa mér að sér, enda ekki sjálfgefið að fólk geri það strax. Það tók talsverðan tíma.“

Heiða er grjótmögnuð

Guðmundur segir að þó vissulega komi sauðfé mikið fyrir í myndinni hans, þá sé hún fyrst og fremst um fólk.

„Það sem ég fékk upp í hendurnar í þessari mynd var margt ótrúlegt. Það voru atburðir sem ég sá ekki fyrir, til dæmis óvænt dramatík,“ segir Guðmundur hinn dularfyllsti og bætir við að ekki skemmi fyrir að ein manneskjan í myndinni, sauðfjárbóndinn Heiða á Ljótarstöðum, sé nú orðin nokkuð þekkt persóna á Íslandi eftir að bók Steinunnar Sigurðardóttur um hana kom út um síðustu jól.

Jón Geir í réttinni ásamt ungbóndanum Bergi Sigfússyni.
Jón Geir í réttinni ásamt ungbóndanum Bergi Sigfússyni.

„Ég byrjaði að vinna með henni í þessari mynd löngu áður en hún varð svo landsfræg sem raun ber vitni, en ég held ekki vatni yfir því hvað hún Heiða er mögnuð. Hún er algerlega grjótmögnuð, ég hef endalaust álit á þessari manneskju. Og allt þetta fólk í myndinni er mjög áhugaverðir persónuleikar og auðvitað alveg harðduglegt allt saman.“

Allir kóngar á fjalli

En hvers vegna heitir myndin Fjallkóngar í fleirtölu, þegar aðeins einn fjallkóngur er í hverri fjallferð?

„Einn í þessum hópi hefur þá skoðun að þau séu öll fjallkóngar þegar komið er inn til fjalla, og þetta skýrist enn betur þegar fólk hefur séð myndina. Ég ætla ekkert að upplýsa meira um það,“ segir Guðmundur og bætir við að hann sé líka mjög ánægður með tónlistina í myndinni sem styðji vel við efnið, enda tveir snillingar sem sömdu og útsettu, þeir Jónas Sigurðsson og Kristinn Snær Agnarsson.

Fjallmenn að störfum, Pétur Davíð Sigurðsson, Sæmundur Oddsteinsson, Sigfús Sigurjónsson …
Fjallmenn að störfum, Pétur Davíð Sigurðsson, Sæmundur Oddsteinsson, Sigfús Sigurjónsson og Jón Atli Jónsson.

Svokölluð „alheimsfrumsýning“, eða forsýning fyrir um 100 manns, var á myndinni í Skaftártungu í nóvember, í heimabyggð fólksins sem hún fjallar um.  „En á morgun er frumsýning í kvikmyndahúsi í höfuðborginni. Ég samdi um aðeins eina sýningu þar, en þar sem það er uppselt á hana þá verður önnur sýning daginn eftir, föstudaginn 13. janúar á sama tíma klukkan 18," segir Guðmundur og bætir við að hann sé að vinna í því að selja sýningarréttinn á henni til sjónvarps, en ekkert sé þó fast í hendi.

Kvikmyndin Fjallkóngar verður frumýnd á morgun, fimmtudag, kl. 18 í Háskólabíói og miðar fást á: smarabio.is/mynd/Fjallkóngar.
Uppfært kl. 20.51:
Fallið hefur verið frá aukasýningunni á föstudag. Þess í stað verður myndin sýnd í tveimur sölum á morgun kl. 18.
Safnið er fagurt þar sem það rennur í hrauninu neðan …
Safnið er fagurt þar sem það rennur í hrauninu neðan við Hólaskjól fram til heimahaga. Smalar reka.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert