Slagsmál og heimilisofbeldi

Gistiskýlið við Lindargötu.
Gistiskýlið við Lindargötu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn gistir fangaklefa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna slagsmála fyrir utan Gistiskýlið á tólfta tímanum. Eitt heimilisofbeldismál kom til kasta lögreglunnar um svipað leyti.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um líkamsárás og heimilisofbeldi í húsi í austurborginni klukkan 23:14 í gærkvöldi. Samkvæmt dagbók lögreglunnar var um minni háttar atvik að ræða og enginn handtekinn. Sá sem varð fyrir ofbeldinu fór ekki á slysadeild.

Aðeins sjö mínútum síðar var tilkynnt um slagsmál við Gistiskýlið. Lögreglan handtók einn sem var mjög ölvaður og með ólæti og gistir hann  fangageymslu lögreglu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert