Undirbúningur hafinn undir formennsku í Norðurslóðaráði

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Undirbúningur að formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu fyrir árin 2019-2021 hófst í dag og flutti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra opnunarávarp að því tilefni á fundi í Hörpu. Með fundinum er hafinn eiginlegur undirbúningur að íslensku formennskunni í víðtæku samráði við þá sem sinna norðurslóðamálefnum hér á landi. Rúmlega 100 manns taka þátt í fundinum.

„Það var sérstaklega ánægjulegt að ávarpa þessa fjölmennu samkomu á mínum fyrsta degi sem utanríkisráðherra. Málefni norðurslóða verða áfram í forgrunni utanríksstefnunnar hjá þessari ríkisstjórn og því fer vel á því að hefja undirbúning að formennskutíð Íslands í Norðurskautsráðinu á upphafsdögum hennar," segir Guðlaugur Þór í fréttatilkynningu.

Norðurskautsráðið var stofnað árið 1996 og eru aðildarríkin, auk Íslands, Bandaríkin, Rússland, Danmörk (f.h. Grænlands), Finnland, Svíþjóð, Noregur og Kanada. Að auki eiga sex samtök frumbyggja aðild að ráðinu sem fastir fulltrúar og áheyrnaraðilar eru 32 talsins. Finnland tekur við formennsku á vordögum og Ísland árið 2019. Ísland gegndi síðast formennsku í Norðurskautsráðinu árin 2002-2004.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert