Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á kröfu Lífeyrissjóðs bankamanna (LB) um dómkvaðningu matsmanns til að meta tiltekin atriði í tengslum við greiðslur ábyrgðaraðila til Eftirlaunasjóða Landsbankans og Seðlabankans.
Árið 2015 neyddist sjóðurinn til að skerða réttindi sjóðsfélaga um 9,65% vegna tryggingafræðilegrar stöðu og þá var staðan enn neikvæð um 2,6% í árslok 2015.
Telja forsvarsmenn LB að forsendur samkomulags, sem gert var 1997 um greiðslur aðildarfyrirtækja að sjóðnum hafi brostið og það hafi reynst ósanngjarnt, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.