Naktir í náttúrunni í Hveragerði

Þeir kunna vel við sig innan um gróðurinn, frá vinstri …
Þeir kunna vel við sig innan um gróðurinn, frá vinstri standandi Kristján Már Sæþórsson, Hallgrímur Hróðmarsson, Elías Óskarsson, Sigurður Sólmundarson og Valdimar Ingi Guðmundsson. Á hækjum sér er fremstur Guðmundur Erlingsson en fyrir aftan hann Runólfur Óli Daðason og Hákon Briem Kristjánsson. Ljósmyndir/Guðmundur Erlingsson og Jóhann Sigurðsson

Það gekk vonum framar að fá nokkra karlmenn til að fækka fötum í leikriti sem Leikfélag Hveragerðis setur nú upp. Þar segir frá hópi karlmanna sem koma vini sínum í raunum til hjálpar með eigin óvæntu ráðum.

„Einn af stjórnarmeðlimum leikfélagsins hérna í Hveragerði fékk þessa fínu hugmynd að setja upp leikrit byggt á bresku kvikmyndinni „The Full Monty“, og horfði þá til fyrirmyndarinnar í Hörgárdalnum þegar sambærilegt staðfært leikrit var sett upp þar,“ segir Hjörtur Benediktsson, formaður Leikfélags Hveragerðis, en þar verður leikritið Naktir í náttúrunni frumsýnt föstudaginn 27. janúar. Hjörtur segir að fenginn hafi verið sami leikstjóri til að setja verkið upp í Hveragerði og stýrði bændunum fyrir norðan, Jón Gunnar Þórðarson.

„Hann þekkir verkið vel og tók að sér að staðfæra handritið sem hann átti og hafði gert upp úr bíómyndinni fyrir bændurna fyrir norðan. Hann setti það í sunnlenskt samhengi fyrir okkur, þarna fléttast Eden inn í, heilsuhælið, tívolíið, garðyrkjan og fleira úr raunveruleika Hveragerðis og Suðurlands. Og auðvitað eru öll mannanöfn íslensk. Þarna er meðal annars uppgjafa paprikubóndi og búvörusamningarnir fléttast inn í þetta og fleira.“

Við getum þetta rétt eins og folarnir úr Reykjavík

Fyrir þá sem ekki þekkja söguna fjallar leikritið um hóp karlmanna sem grípa til eigin ráða til að hjálpa vini sínum í raunum, þeir safna fyrir hann peningum með óvæntum aðferðum.

„Í þessu tilfelli hér í Hveragerði er vinurinn atvinnulaus af því hann er að missa garðyrkjustöðina sína. Slíkt leiðir til ýmissa vandamála, þá getur orðið erfitt fyrir hann að borga meðlag með syninum og hann gæti átt á hættu að fá ekki að hitta drenginn. Þá taka þeir sig saman vinir hans og fá mann til að hjálpa sér við að læra dans svo þeir geti sett upp nektarsýningu. Þeir vita sem er að folar úr Reykjavík hafa komið á kvennakvöld á Hótel Örk og sýnt þar fáklæddir dans, og þeir spyrja sig hvers vegna þeir geti það ekki rétt eins og hinir. Félögunum líst misvel á hugmyndina og einn segist vera svo feiminn að hann hátti ekki einu sinni fyrir framan konuna sína, hvað þá fullan sal af fólki. En hann lætur vaða og málin þróast þannig að þeir slá í gegn og raka inn peningum sem þörf er á fyrir atvinnulausa vininn.“

Fjölbreyttir líkamar karla á öllum aldri

Hjörtur segir það hafa komið á óvart hversu auðvelt var að fá menn til að leika í verkinu, að óreyndu hélt hann að þeir væru tregir til að striplast á sviði fyrir framan áhorfendur.

„Þetta gekk vonum framar en ég játa að ég var svolítið svartsýnn í byrjun, það eru sautján leikarar í þessu leikriti og megnið karlmenn. En nokkur hlutverk eru fyrir konur; eiginkonur, fyrrverandi, mæður og aðrar sem hafa áhrif á líf karlanna, en þær þurfa ekki að fækka fötum. Í svona litlu leikfélagi eins og hér í Hveragerði er auðvitað fyrsta spurning sem kemur upp þegar hugað er að uppsetningu: Hvaða mannskap höfum við? En þegar það spyrst út hvaða verk á að taka er eins og þetta gerist að hluta til sjálfkrafa. En auðvitað þarf líka að hringja í einhverja og falast eftir þátttöku. En það er ákveðinn fastur kjarni fólks sem fylgir leikfélaginu, því þótt fólk taki sér stundum hlé koma flestir aftur þegar þeir hafa hlaðið batteríin að nýju. Sumir hafa verið þarna meira og minna í tuttugu til þrjátíu ár. En það er alltaf gaman að sjá ný andlit í leikfélaginu,“ segir Hjörtur og bætir við að hann hafi farið á karlakvöld á Örkinni til að leita að leikurum því hann vantaði tvo til þrjá í viðbót. „Þar hitti ég tvo gæja og sagði þeim frá leikritinu og það var eins og við manninn mælt, þeir voru komnir á fund daginn eftir og tóku þetta fúslega að sér og standa sig vel.“

Eins og sjá má á myndunum eru þetta karlmenn á öllum aldri og með ólíkustu líkama, þarna er til dæmis þroskaður fyrrverandi menntaskólakennari um sjötugt sem vílar ekki fyrir sér að fletta sig klæðum á sviði. Svo eru þeir alveg niður í tuttugu og fimm ára stráka.

Hjörtur fer með sjálfur með hlutverk í leikritinu, hann leikur prest, en sá er ekki með strípiþörf. „Ég er í fullum prestsskrúða allan tímann,“ segir hann og bætir við að hann voni að það valdi ekki vonbrigðum.

Selja líka almanak með nektarmyndum

Hjörtur segir að fyrir jólin hafi leikararnir farið í nektarmyndatöku í sínu náttúrulega umhverfi, sumir á bar, aðrir inni í gróðurhúsum, á fótboltavelli, út í náttúrunni eða annars staðar.

„Þessar myndir notuðum við til að gefa út dagatal og safna aur fyrir leikfélagið. Þetta rokseldist og þetta glæsilega almanak verður líka til sölu á leiksýningunum, en þar fyrir utan fæst það í Álnavörubúðinni í Hveragerði, í blómabúðinni og Shell-bensínstöð Hvergerðinga,“ segir Hjörtur og bætir við að þegar hann hafi boðið konu einni að kaupa dagatalið fyrir jólin hafi hún sagt að það gæti hún ekki því hún hefði engan nagla til að hengja það á.

„En ég bauð henni að gefa henni nagla og lána henni hamar, svo hún lét tilleiðast að lokum.“

Leikritið Naktir í náttúrunni verður frumsýnt föstud. 27. jan. Miðapantanir í s. 863-8522 og sýningardaga má sjá á Facebook-síðu leikfélagsins, sem og myndir.
Náttúruvænn. Guðmundur Erlingsson í ljósmyndaferð.
Náttúruvænn. Guðmundur Erlingsson í ljósmyndaferð.
Þyrstur. Sigurður Sólmundarson stillir sér upp á barnum.
Þyrstur. Sigurður Sólmundarson stillir sér upp á barnum.
Galvaskur. Kristján Már Sæþórsson klæðlítill með rörtangir.
Galvaskur. Kristján Már Sæþórsson klæðlítill með rörtangir.
Siðapostuli. Hjörtur í hlutverki prestsins.
Siðapostuli. Hjörtur í hlutverki prestsins.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert