Vöknuðu við reykskynjarann

Slökkvilið og lögregla voru kölluð út að Kristnibraut skömmu fyrir eitt í nótt en þar hafði kviknað í kertahúsi á arinhillu. Íbúarnir vöknuðu við reykskynjara og brugðust skjótt við.

Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra í slökkviliðinu var húsráðandi búinn að slökkva eldinn þegar komið var á vettvang en slökkviliðið reykræsti íbúðina.

Fremur rólegt var á næturvaktinni hjá slökkviliðinu fyrir utan að kveikt var í gámi og eitt vatnstjón kom til kasta slökkviliðsmanna á höfuðborgarsvæðinu. Um minni háttar leka var að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert