Féll af 3. hæð – Maður handtekinn

Lögregla var kölluð til á miðnætti í nótt þegar tilkynnt var að maður hefði fallið af svölum íbúðar á 3. hæð við Breiðvang í Hafnarfirði. Hinn slasaði var fluttur á slysadeild en ekki er vitað um ástand hans.

Annar maður var í íbúðinni og var sá í mjög annarlegu ástandi. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.

Tilkynnt var um innbrot í íbúðarhús í Garðabæ í nótt og í heimahús í Hafnarfirði.

Þá var maður handtekinn í Breiðholti í gærkvöldi, grunaður um líkamsárás. Var hann vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert