Bílvelta í Öræfum

Frá Öræfum. Mynd úr safni.
Frá Öræfum. Mynd úr safni. mbl.is/Rax

Bíll valt út af vegi við Sandfell í Öræfum nú á fjórða tímanum. Hefur lögreglan á Suðurlandi óskað eftir því að þyrla Landhelgisgæslunnar verði send á vettvang til að sækja tvo farþega bílsins sem komust út úr honum af eigin rammleik.

Ekki er vitað um möguleg meiðsl þeirra, auk þess sem fara þarf langt til að sækja þá, og telur lögregla því réttast að þyrlan sæki mennina tvo.

Tilkynnt var um bílveltuna klukkan 15.49, segir Oddur Árnason yfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert