Birna sást síðast í miðbænum

Ökumaður rauðrar Kiu Rio er beðinn um að hafa samband …
Ökumaður rauðrar Kiu Rio er beðinn um að hafa samband við lögreglu sem allra fyrst.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn Birnu Brjánsdóttur, tvítugrar konu sem lýst var eftir í fjölmiðlum um helgina.  Birna er um 170 sm á hæð, með sítt ljósrautt hár, klippt með topp fram á ennið. Hún var klædd í svartar gallabuxur, gráa peysu og svartan flísjakka með hettu. Þá var hún í svörtum uppreimuðum Dr. Martens-skóm. 

Síðast er vitað um að Birna hafi verið í samskiptum við fólk á skemmtistaðnum Húrra við Tryggvagötu í Reykjavík. Birna sést í eftirlitsmyndavélum ganga ein síns liðs austur Austurstræti, Bankastræti og Laugaveg að húsi nr. 31 þar sem hún hverfur sjónum um kl. 05:25.  Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um ferðir Birnu og hvar hún er niðurkomin að hafa samband við lögreglu í síma 444-1109.

Í þágu rannsóknar þessa máls eru meðfylgjandi nokkrar myndir úr eftirlitsmyndavélum í miðborginni. Á myndunum má sjá rauða fólksbifreið sem sennilega er af gerðinni Kia Rio.  Bifreiðinni var ekið vestur Laugaveg á móts við hús nr. 31 kl. 05:25 aðfaranótt laugardagsins 14. janúar. Í því skyni að leita upplýsinga um ferðir Birnu biður lögreglan ökumann rauðu bifreiðarinnar að hafa samband við lögreglu í síma 444-1109 sem allra fyrst. 

Þá biður lögreglan alla þá sem voru á ferðinni á þessum slóðum um kl. 05:25 aðfaranótt 14. janúar og kynnu að hafa veitt Birnu Brjánsdóttur athygli að hafa samband við lögreglu, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.

Facebook-síða lögreglunnar

Facebook-síða leitarinnar 

Birna Brjánsdóttir.
Birna Brjánsdóttir. Facebook
Birna Brjánsdóttir.
Birna Brjánsdóttir.
Lögreglan biður ökumann bílsins að hafa samband.
Lögreglan biður ökumann bílsins að hafa samband.
Birna Brjánsdóttir.
Birna Brjánsdóttir.
Birna Brjánsdóttir.
Birna Brjánsdóttir.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert