Einn þriggja dómara sagður vanhæfur

Frá Héraðsdómi Reykjaness. Átta eru ákærðir í málinu.
Frá Héraðsdómi Reykjaness. Átta eru ákærðir í málinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rétt­ar­höld yfir átta manns, sem ákærð eru fyr­ir að hafa svikið allt að 300 millj­ón­ir króna úr rík­is­sjóði, eru hafin í Héraðsdómi Reykja­ness. Einn þeirra, fyrr­ver­andi starfsmaður rík­is­skatt­stjóra, er í ákæru sagður hafa leikið lyk­il­hlut­verk í svik­un­um, en af hinum ákærðu eru sex karl­ar og tvær kon­ur.

Við upphaf aðalmeðferðar bað verjandi mannsins dómara um orðið, en þrír dómendur sitja í dómnum í málinu. Sagðist hann vilja vekja athygli á því, sem runnið hefði upp fyrir honum síðdegis í gær, að einn dómendanna væri vanhæfur til að dæma í málinu.

Sagði hann dómarann hafa gefið út úrskurð, 5. nóvember 2010, um hlustun og hljóðritun á síma skjólstæðings síns. Á grundvelli þess úrskurðar gætu hafa fengist gögn sem ráðið gætu úrslitum í málinu.

Sakborningurinn hafi engan málsvara

„Með þessari hlustun er í raun verið að athuga hvort hann tjái sig um málið við aðra,“ sagði verjandinn og bætti við að Hæstiréttur hefði úrskurðað gegn notkun hlustana með þessum hætti.

„Ég tel að dómari sem hefur komist að þessari niðurstöðu undir rekstri málsins, sé ekki hæfur til setu í dómnum.“

Þá sagði hann að hafa verði í huga að sakborningurinn hafi engan málsvara við hlustun sem þessa, fyrir utan aðeins dómarann.

Sækjandinn í málinu sagðist ekki sammála ofangreindum sjónarmiðum. Annar verjandi tók hins vegar undir þau.

Dómarar hafa þá beðið um stutt hlé að svo stöddu.

Kom upp í september árið 2010

Málið kom upp fyr­ir rúm­um sex árum, í sept­em­ber árið 2010, og er fólkið sakað um að hafa notað sýnd­ar­fyr­ir­tæki til að svíkja féð út úr virðis­auka­skatt­s­kerf­inu. Fyr­ir­tæk­in sem fólkið hafi komið á fót hafi þá haft enga raun­veru­lega starf­semi, en fengið í krafti falsaðra gagna og aðgangs að starfs­manni rík­is­skatt­stjóra stór­fé vegna bygg­ing­ar þriggja húsa sem voru aldrei reist.

Fyr­ir­tæki gátu þá fengið sér­staka heim­ild til end­ur­greiðslu á innskatti meðan á upp­bygg­ingu stóð og tókst fólk­inu þannig að svíkja út 270 millj­ón­ir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert