Göngumaður í vanda á Helgafelli

Helgafell við Hafnarfjörð.
Helgafell við Hafnarfjörð. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út á áttunda tímanum í kvöld vegna göngumanns sem hafði hrasað í hlíðum Helgafells fyrir ofan Hafnarfjörð um fjögurleytið í dag.

Maðurinn, sem var einn á ferð, treysti sér ekki til að halda för sinni áfram án aðstoðar. Göngufólk sem gekk fram á manninn kallaði því á hjálp. Í fréttatilkynningu frá Landsbjörg segir að björgunarfólk hafi verið komið til mannsins laust fyrir hálfníu í kvöld.

Björgunarsveitarfólkið mun aðstoða hann niður af fjallinu og flytja til móts við sjúkrabíl.

mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert