Hvetur fólk til að gefast ekki upp

„Núna er björgunarsveitin komin í málið og við erum ofboðslega þakklát. Við hvetjum alla til að halda áfram að leita og gefast ekki upp,“ segir Matthildur Soffía Jónsdóttir, vinkona Birnu Brjánsdóttur sem ekkert hefur spurst til síðan aðfaranótt laugardags.

Frétt mbl.is: Snúa við hverjum steini í miðbænum

Matthildur Soffía fór á skemmtistaðinn Húrra með Birnu þetta kvöld. „Ég fór fyrr heim en hún var lengur,“ segir hún og bætir við að þær hafi oft farið þangað að skemmta sér.

Hún hefur tekið þátt í leitinni að vinkonu sinni í allan dag og einnig í gær. Meðal annars hefur hún leitað í Flatahrauni í Hafnarfirði þar sem merki bárust frá farsíma Birnu og einnig í miðbæ Reykjavíkur í dag, þar sem síðast sást til hennar. 

Matthildur Soffía og Birna Brjánsdóttir.
Matthildur Soffía og Birna Brjánsdóttir. Ljósmynd/Af Facebook síðu Matthildar

Aðspurð segir Matthildur að sér líði hræðilega vegna hvarfs vinkonu sinnar. Hún er afar þakklát fyrir alla þá aðstoð sem fólk hefur veitt vegna leitarinnar. „Ég vil alls ekki að við gefumst upp á leitinni og vil að allir haldi áfram að hugsa um þetta þar til hún finnst.“

Myndband sem Matthildur Soffía deildi á Facebook af þeim vinkonum:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert