Sérhæft leitarfólk leitar að Birnu

Björgunarsveitarfólk tekur þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur en ekkert …
Björgunarsveitarfólk tekur þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur en ekkert hefur spurst til hennar í á þriðja sólarhring. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Leitarfólk úr björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna leitarinnar að Birnu Brjánsdóttur. Um er að ræða sérhæft leitarfólk sem mun einbeita sér að svæðinu þar sem síðast sást til Birnu og leita skipulega út frá því.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. 

Síðast sást til Birnu í eftirlitsmyndavél við Laugaveg 31. Leitin að henni á að hefjast í hádeginu. 

„Svæðisstjórn björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi og hefur síðan unnið að gagnaöflun með lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem m.a. leiddi til þeirrar sameiginlegu ákvörðunar lögreglu og Slysavarnafélagsins Landsbjargar að hefja leit að Birnu en laust fyrir miðnætti var óskað eftir aðstoð sporhunds bæði í miðborg Reykjavíkur og við Flatahraun í Hafnarfirði,“ segir í tilkynningunni. 

Birna Brjánsdóttir.
Birna Brjánsdóttir. Ljósmynd/Facebook
Björgunarsveitarfólk tekur þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur.
Björgunarsveitarfólk tekur þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur. mbl.is/Hallur Már
Björgunarsveitarfólk að störfum í hádeginu í miðborginni.
Björgunarsveitarfólk að störfum í hádeginu í miðborginni. mbl.is/Hallur Már
Björgunarsveitarfólk við leit í miðborginni.
Björgunarsveitarfólk við leit í miðborginni. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert