Þrír á slysadeild eftir árekstur

mbl.is/Hjörtur

Þrír voru fluttir með sjúkrabifreiðum á bráðadeild Landspítalans eftir tveggja bíla árekstur á Reykjanesbraut við Bústaðaveg á ellefta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru meiðsl þeirra talin minni háttar.

Tveir ökumenn voru teknir undir áhrifum vímuefna í gærkvöldi á höfuðborgarsvæðinu. Sá fyrri var stöðvaður um klukkan 21 á Seltjarnarnesi. Hann er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíkniefna.

Sá seinni var stöðvaður við Hjallabraut í Hafnarfirði á ellefta tímanum en hann er grunaður um ölvun við akstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert