Vigdís Ósk aðstoðar Jón

Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir.
Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir. Ljósmynd/Innanríkisráðuneytið

Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir lögfræðingur hefur verið ráðin aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Þetta kemur fram á vefsíðu innanríkisráðuneytisins. Þar segir að Vigdís Ósk muni hefja störf á næstu dögum en hún hafi starfað sem lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

„Vigdís Ósk lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri 2006, meistaraprófi 2008 og árið eftir hlaut hún málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. Árið 2013 lauk hún LLM-prófi í alþjóðlegum refsirétti frá University of Sussex í Bretlandi. Meðfram námi starfaði hún hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra og hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Eftir útskrift starfaði hún sem héraðsdómslögmaður hjá Lögmönnum Höfðabakka. Frá árinu 2015 hefur hún verið lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem hún sinnti undirbúningi og gerð umsagna um lagafrumvörp og önnur þingmál og tók þátt í samskiptum við Alþingi. Einnig annaðist hún lögfræðilega ráðgjöf og upplýsingagjöf til sveitarstjórnarmanna,“ segir enn fremur.

Þá hefur Vigdís Ósk setið í stjórn Íslenskrar ættleiðingar sem og í stjórn evrópsku og norrænu ættleiðingarsamtakanna, setið í ritstjórn tímaritsins Lögfræðings og í stjórn Félags kvenna í lögmennsku. Enn fremur hefur hún setið í kjörstjórn Garðabæjar, þá bæði fyrir kosningar til Alþingis og forsetakosningar. Maður Vigdísar er Gerald Häsler, viðskiptastjóri hjá Landsbankanum, og eiga þau tvær dætur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert