Steinar og Þórunn aðstoðarmenn umhverfisráðherra

Steinar Kaldal og Þórunn Pétursdóttir eru aðstoðarmenn Bjartar Ólafsdóttur, umhverfis- …
Steinar Kaldal og Þórunn Pétursdóttir eru aðstoðarmenn Bjartar Ólafsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Steinar Kaldal og Þórunn Pétursdóttir hafa verið ráðin aðstoðarmenn Bjartar Ólafsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra. Þau hefja störf í næstu viku.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu, sem er svohljóðandi:

„Síðastliðin ár hefur Steinar unnið sem verkefnisstjóri hálendisverkefnis Náttúruverndarsamtaka Íslands og Landverndar sem er samvinnuverkefni náttúruverndarsamtaka, útivistarsamtaka og Samtaka ferðaþjónustunnar og snýr að vernd miðhálendisins. Steinar er jafnframt formaður FUMÍ, félags umhverfisfræðinga á Íslandi.

Steinar er með stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund, BA-próf í stjórnmálafræði með atvinnulífsfræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands og mastersgráðu (MSc) í umhverfisstjórnun- og stefnumótun frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Steinar hefur auk þess lokið fréttamannaprófi Ríkisútvarpsins.

Steinar hefur m.a. starfað sem leiðbeinandi á leikskóla, blaðamaður á Fréttablaðinu, verkefnastjóri í Frístundamiðstöðinni Frostaskjóli og sem sérfræðingur hjá Útlendingastofnun.

Steinar er giftur Soffíu Erlu Einarsdóttur ráðgjafa á meðferðarstöðinni Stuðlum og eiga þau tvo drengi.

Þórunn Pétursdóttir nam umhverfisfræði við Garðyrkjuskóla ríkisins og landfræði við Háskóla Íslands. Hún lauk mastersgráðu (MSc) í landgræðsluvistfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands og er að ljúka doktorsgráðu í landgræðsluvistfræði frá sama skóla.

Þórunn hefur víðtæka reynslu á sviði umhverfis- og náttúruverndarmála. Hún sat um árabil í stjórn Landverndar og var í fyrstu stjórn Vatnajökulsþjóðgarðar. Hún hefur starfað hjá Landgræðslu ríkisins frá árinu 2003 og sinnt þar fjölbreyttum verkefnum, fyrst sem héraðsfulltrúi á Vesturlandi en síðar sem sérfræðingur, m.a. á sviði sjálfbærni og vistheimtar. Þá hefur hún tekið þátt í margvíslegum samstarfsverkefnum, innlendum sem og erlendum, sem tengjast m.a. auðlindanýtingu og umhverfisvernd.

Á árunum 2010-2013 var Þórunn í rannsóknarnámsstöðu hjá Institute of Environment and Sustainability sem er ein af rannsóknarstofnunum Framkvæmdaráðs Evrópusambandsins.

Þórunn er í sambúð og á fjögur börn og tvö barnabörn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert