Polar Nanoq kominn til Hafnarfjarðar

Polar Nanoq í Hafnarfjarðarhöfn.
Polar Nanoq í Hafnarfjarðarhöfn. mbl.is/Eggert

Grænlenski togarinn Polar Nanoq er kominn til Hafnarfjarðar eftir um sólarhringssiglingu frá Grænlandi eftir að lögreglan óskaði eftir að skipið kæmi hingað til lands aftur. Um hádegi í dag voru tveir skipverjar um borð handteknir af sérsveitarmönnum ríkislögreglustjóra og seinna í dag var sá þriðji handtekinn. Eru þeir allir grunaðir um að búa yfir upplýsingum um hvarf Birnu Brjánsdóttur aðfaranótt laugardags.

Sett­ir voru upp gám­ar til að tak­marka sýn að skip­inu þegar það kem­ur og hef­ur lög­regl­an lokað hafn­ar­svæðinu. Fjöl­miðlafólki var þó hleypt ör­lítið nær, en er engu að síður um 300 metra frá hafn­ar­bakk­an­um. 

Uppfært kl. 23:14: Togarinn er nú kominn alveg upp við höfnina og eru lögreglumenn farnir að tínast út úr lögreglubílum sem lagt var við skipið. Tæplega 20 bílar eru á svæðinu, bæði merktir lögreglubílar og ómerktir. Þá er verið að undirbúa landgöngubrúna úr togaranum. 

Uppfært kl. 23:23: Landgöngubrúin er komin niður stjórnborðsmegin og eru skipverjar að setja upp handriðið. Sérsveitarmaður er við innganginn, en enginn hefur verið leiddur út enn þá.

Uppfært kl. 23:38: Nokkrir lögreglumenn gengu upp landganginn og inn í skipið. Verið er að setja upp net utan á skipið, en ekki er ljóst hver tilgangur þess er. Mögulega á að reyna að byrgja sýn á þá sem ganga út. Björgunarsveitarfólk er enn við leit á hafnarsvæðinu. Ekki er ljóst hversu lengi leit mun standa yfir.

Uppfært kl. 00:05: Lögreglan fylgdi einum manni frá borði núna rétt yfir miðnætti, en hann virtist vera hulinn þannig að erfitt var að greina hann. Samkvæmt blaðamanni mbl.is á staðnum er mikill viðbúnaður hjá lögreglunni á þessari stundu. Björgunarsveitarfólk er ekki lengur að störfum við höfnina.

Uppfært kl. 00:07: Maður númer tvö hefur nú verið leiddur frá borði. Fjölmargir lögreglumenn fylgdu honum niður landganginn. Þá er fyrsti lögreglubíllinn lagður af stað með einn hinna grunaða.

Uppfært kl. 00:09: Búið er að leiða alla þrjá sem eru grunaðir í málinu frá borði. Þá eru þrír lögreglubílar lagðir af stað með mennina frá höfninni. Nokkrir lögreglumenn fylgja hverjum hinna grunuðu. Mönnunum er haldið alveg í sundur.

Nokkrir lögreglumenn eru enn þá á vettvangi, en fyrr í kvöld var greint frá því að tæknideild lögreglunnar myndi skoða skipið.

Polar Nanoq í Hafnarfjarðarhöfn.
Polar Nanoq í Hafnarfjarðarhöfn. mbl.is/Árni Sæberg
Lögreglumenn að störfum við Hafnarfjarðarhöfn er Polar Nanoq kom til …
Lögreglumenn að störfum við Hafnarfjarðarhöfn er Polar Nanoq kom til landsins. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert