Forseti finnska þingsins í heimsókn

Maria Lohela, forseti finnska þingsins.
Maria Lohela, forseti finnska þingsins. Ljósmynd/Wikipedia - Soppakanuuna

Maria Lohela, forseti finnska þingsins, verður í opinberri heimsókn á Íslandi dagana 18.–20. janúar 2017 í boði Steingríms J. Sigfússonar, forseta Alþingis. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Alþingi að á meðan á heimsókn hennar stendur muni hún eiga fundi með forseta þingsins og formönnum þingflokka ásamt því að ræða við forsætisnefnd Alþingis.

„Þá mun forseti finnska þingsins heimsækja Bessastaði og eiga fund með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands. Jafnframt fundar Lohela með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra. Finnland fagnar á þessu ári 100 ára afmæli sjálfstæðis og lýðveldisstofnunar og standa finnsk stjórnvöld fyrir ýmsum viðburðum af því tilefni, jafnt í Finnlandi sem annars staðar á Norðurlöndum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert