Hvolpar bornir út á Kjalarnesi

Um var að ræða þrjá blendingshvolpa sem fundust nálægt þjóðveginum.
Um var að ræða þrjá blendingshvolpa sem fundust nálægt þjóðveginum. mbl.is/RAX

Hvolpar fundust undir kyrrstæðum bíl á Kjalarnesi að kvöldi fimmtudagsins 15. desember. Hvolparnir höfðu verið skildir þar eftir bjargarlausir nálægt þjóðveginum. Matvælastofnun hefur kært verknaðinn til lögreglu.

Ábending barst Matvælastofnun frá íbúum á Kjalarnesi sem fundu hvolpana. Um var að ræða þrjá blendingshvolpa sem fundust nálægt þjóðveginum. Einn hafði orðið fyrir bíl en hinir tveir fundust á lífi, töluvert vannærðir. Lyktin af þeim gaf til kynna að þeir hefðu verið haldnir í útihúsum. Farið var með hvolpana á Dýraspítalann í Garðabæ og þeim fundin ný heimili að aðhlynningu lokinni.

Í lögum um velferð dýra segir að óheimilt sé að yfirgefa dýr í bjargarlausu ástandi. Jafnframt er óheimilt að sleppa dýrum sem hafa alist upp hjá mönnum úti í náttúruna í þeim tilgangi að þau verði þar til frambúðar. Ef dýr strjúka eða sleppa úr haldi skulu umráðamenn þeirra þegar gera ráðstafanir til að handsama þau. Umráðamanni eða sveitarfélagi, sé umráðamaður ekki þekktur, er skylt að smala eða handsama dýr, önnur en villt dýr, sem ætla má að líði fyrir umhirðu- eða skjólleysi úti í náttúrunni.

Umráðamaður hvolpanna er óþekktur og liggur enginn undir grun að svo stöddu. Þeir sem kunna að hafa vitneskju um málið eru hvattir til að setja sig í samband við Lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, segir á vef Matvælastofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert