Staðfesti sýknudóm í SPRON-málinu

Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm í SPRON-málinu svonefnda.
Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm í SPRON-málinu svonefnda. mbl.is/Árni Sæberg

Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm Héraðsdóm­s Reykja­vík­ur í SPRON-málinu svonefnda. Mál­svarn­ar­laun þeirra greiðast úr rík­is­sjóði en þau hlaupa sam­tals á nokkr­um millj­ón­um króna.

Fjór­ir fyrr­ver­andi stjórn­ar­menn SPRON, þau Ari Berg­mann Ein­ars­son, Jó­hann Ásgeir Bald­urs, Mar­grét Guðmunds­dótt­ir og Rann­veig Rist, sem og fyrr­ver­andi sparis­sjóðstjóri SPRON, Guðmund­ur Örn Hauks­son, voru ákærðir í mál­inu fyr­ir umboðssvik. Voru þau ákærð fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína og stefnt fé spari­sjóðsins í veru­lega hættu með því að fara út fyr­ir heim­ild­ir til lán­veit­inga.

Í ákær­unni var byggt á 2 millj­arða króna pen­inga­markaðsláni sem stjórn SPRON samþykkti á stjórn­ar­fundi 30. sept­em­ber 2008 að veita Ex­ista án trygg­inga og án þess að lagt væri mat á greiðslu­getu og eigna­stöðu fé­lags­ins í sam­ræmi við út­lána­regl­ur. Lánið var fram­lengt fjór­um sinn­um í kjöl­farið. 1,3 millj­arðar voru greidd­ir til baka af því. Taldi sak­sókn­ari um stór­felld brot að ræða.

Í dómi héraðsdóms kem­ur fram að í ákæru sér­staks sak­sókn­ara hafi ekki komið fram hvers vegna ákærðu í mál­inu hafi verið óheim­ilt að veita Ex­istu hf. pen­inga­markaðslán án trygg­inga. Seg­ir enn frem­ur að skilja hafi mátt ákær­una svo að út­lána­regl­ur SPRON hafi for­takslaust bannað slík lán.

Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að þótt fallist verði á að ákærðu hafi, sem stjórnarmönnum og forstjóra, borið að hafa yfirsýn yfir þann lausafjárvanda sem sparisjóðurinn glímdi við haustið 2008 verði „ákæran ekki skilin á þá leið að ákærðu sé gefið að sök að hafa rýrt lausafjárstöðu sparisjóðsins óhóflega þegar þau samþykktu téða lánveitingu.“ Þetta atriði geti því einungis komið til skoðunar að því marki sem það hafi þýðingu við mat á þeirri háttsemi sem ákærðu er gefin að sök, svo sem hvort umrædd staða sparisjóðsins hafi gefið tilefni til þess að óska eftir sérstakri tryggingu fyrir endurgreiðslu lánsins.

Ekkert hafi komið fram í málinu sem styðji það ákæruatriði að hinir ákærðu stjórnarmenn hafi látið hjá líða að afla upplýsinga um greiðslugetu og eignastöðu Exista, eða kynna sér slíkar upplýsingar. Þvert á móti virðist hið gagnstæða vera rétt og stjórnin „hafi byggt ákvörðun sína á nýjustu upplýsingum um félagið sem tiltækar voru,“ segir í dóminum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert