Dópaður og réttindalaus á stolnum bíl

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Akstur bifreiðar var stöðvaður af lögreglu í austurhluta Reykjavíkur skömmu fyrir fjögur í nótt. Í ljós kom að ökumaðurinn var próflaus, undir áhrifum fíkniefna og hafði stolið bifreiðinni. Jafnframt hafði verið skipt um númeraplötur á bifreiðinni.

Með ökumanni voru tveir farþegar og á öðrum fundust fíkniefni en hann skuldar einnig á aðra milljón í sektargreiðslur.

Þremenningarnir eru allir vistaðir í fangageymslu vegna málsins og verða þeir yfirheyrðir síðar í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert