Ökumaður hvíta bílsins, sem lögreglan lýsti eftir í fyrradag, er kominn í leitirnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Er almenningi þakkað fyrir veitta aðstoð í málinu.
Bíllinn sást keyra vestur Óseyrarbraut í Hafnarfirði laugardaginn 14. janúar klukkan 12:24, samkvæmt öryggismyndavélum við höfnina. Lýsti lögreglan eftir ökumanni bílsins á laugardaginn síðasta og sagðist vilja ná tali af honum. Tekið var skýrt fram að ökumaðurinn væri ekki grunaður um neitt misjafnt. Hann gæti þó hugsanlega búið yfir upplýsingum sem kynnu að nýtast lögreglu við rannsókn máls Birnu Brjánsdóttur.