Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar nýtur lítillar ánægju landsmanna. Fjórðungur er ánægður með nýja ríkisstjórn en rösklega 47% eru óánægð. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu um ánægju með nýja ríkisstjórn.
Karlar eru ánægðari með nýju ríkisstjórnina en konur, um 30% karla en 20% kvenna. Þeir sem eru tekjuhærri eru ánægðari með ríkisstjórnina. 18% þeirra sem hafa lægstu tekjurnar eru ánægð með nýja ríkisstjórn en tæplega 32% þeirra sem hafa hæstu tekjurnar.
Kjósendur flokkanna sem standa að nýrri ríkisstjórn eru ánægðari en kjósendur annarra flokka. Á bilinu 77-79% kjósenda Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar eru ánægð með nýja ríkisstjórn en einungis tæplega 31% kjósenda Bjartrar framtíðar. Af kjósendum stjórnarandstöðunnar eru Framsóknarmenn ánægðastir með nýja ríkisstjórn, eða 13% en um eða innan við 1% Pírata, Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.
Svarendur voru 810 talsins og koma úr Þjóðgátt Maskínu sem er panelhópur fólks.