Framlag allra „ómetanlegt“

Frá aðgerðum um helgina.
Frá aðgerðum um helgina. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma á framfæri þökkum til þeirra fjölmörgu aðila sem aðstoðuðu við leitina að Birnu Brjánsdóttur. Kemur þetta fram í tilkynningu á vef embættisins.

„Fagmennska og framlag þeirra allra er ómetanlegt, ekki síst björgunarsveitanna sem aldrei bregðast kallinu. Sama gildir um Landhelgisgæsluna, tollyfirvöld og samstarfsfólk okkar hjá öðrum lögregluembættum. Þar má nefna embætti ríkislögreglustjóra og lögregluliðin á Suðurnesjum og Suðurlandi.“

Lögreglan segist þá líka vilja þakka fjölmiðlum, sem hafi gegnt mikilvægu hlutverki við að koma upplýsingum á framfæri.

„Að síðustu vill lögreglan þakka sérstaklega almenningi, sem hefur sent okkur ótal ábendingar varðandi málið, og enn fremur forsvarsmönnum ýmissa einkafyrirtækja sem hafa veitt mikilvæga aðstoð.

Fjölskyldu og vinum Birnu vottum við innilega samúð á erfiðri stundu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert