Lögreglu barst tilkynning frá björgunarsveitarfólki á Reykjanesi í gærmorgun um að skammt frá Hafnarvegi hefði fundist handsprengja.
Sprengjusérfræðingar ríkislögreglustjóra fóru á vettvang og rannsökuðu handsprengjuna, en hún reyndist óvirk æfingasprengja, þá líklegast frá dögum bandaríska hersins á Íslandi. Sprengjusérfræðingar tóku æfingasprengjuna í sína vörslu.
Er fólki bent á að snerta ekki torkennilega hluti sem það kann að finna ef það telur þá vera hættulega, sprengjur eða annað og hafa samband við lögreglu, segir í beiðni frá ríkislögreglustjóra.