Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur sent foreldrum Birnu Brjánsdóttur innilegar samúðarkveðjur.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef embættisins.
„Orð fá ekki linað hina miklu sorg en minningin um Birnu, þessa ungu og björtu stúlku, sem var tekin frá okkur í blóma lífsins, mun ætíð lifa með íslenskri þjóð,“ skrifar Guðni þar.
Um leið segist hann vilja koma á framfæri þökkum til björgunarsveitarfólks, lögreglu og annarra sem leituðu að Birnu og rannsökuðu hvarf hennar.
„Í samstöðu og einhug eigum við Íslendingar mikinn styrk.“