„Hugur Grænlendinga er með ykkur“

Leit lögreglu og björgunarsveita að Birnu Brjánsdóttur lauk í gær. …
Leit lögreglu og björgunarsveita að Birnu Brjánsdóttur lauk í gær. Eins og fram hefur komið hafa aðgerðirnar verið gríðarlega umfangsmiklar. mbl.is/Eggert

Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra barst í gærkvöldi samúðarbréf frá starfsbróður sínum á Grænlandi, Vittus Qujaukitsoq, eftir að lögregla hafði tilkynnt að talið væri að Birna Brjánsdóttir hefði fundist látin. „Hugur Grænlendinga er með ykkur í dag,“ segir í bréfinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 

Þar segir enn fremur, að í bréfi utanríkisráðherrans segi að fyrir hönd grænlensku landstjórnarinnar og Grænlendinga allra færi hann Íslendingum sínar dýpstu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Hvarf Birnu Brjánsdóttur og tengsl grænlenskra ríkisborgara við atburðina sé mikið sorgarefni. Segir hann að böndin milli Grænlendinga og Íslendinga séu traust á mörgum sviðum og að glæpurinn sem framinn hafi verið snerti Grænlendinga djúpt. „Hugur Grænlendinga er með ykkur í dag,“ segir í bréfi Vittus Qujaukitsoq. 

Vittus Qujaukitsoq.
Vittus Qujaukitsoq.

Guðlaugur Þór segist hrærður vegna þess samhugs sem Grænlendingar hafi sýnt íslensku þjóðinni á þessari erfiðu stundu.

„Hugur okkar allra er hjá fjölskyldu og ástvinum Birnu. Samkenndin sem vinir og grannar okkar sýna snertir mig djúpt og kertavakan sem Grænlendingar skipulögðu í gærkvöldi sýnir með hjartnæmum hætti hversu djúp vináttan er á milli þjóða okkar,“ segir utanríkisráðherra. 

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert