Minningarathöfn um Birnu

Birna Brjánsdóttir.
Birna Brjánsdóttir.

Minningarathöfn verður haldin um Birnu Brjánsdóttur, sem lést 14. janúar síðastliðinn, á laugardaginn næsta kl. 16. Gengið verður frá Laugavegi nr. 31 þar sem Birna sást síðast á lífi, niður Laugaveginn og að Tjörninni þar sem kertum verður fleytt.

Rúmlega 500 manns hafa sagst ætla að mæta á athöfnina er búið er að stofna viðburð á Facebook vegna hennar.

Einn af skipuleggjendunum segir á Facebook-síðunni:

„Ég hvet alla til að koma saman og minnast Birnu Brjánsdóttur sem var tekin alltof fljótt frá fjölskyldu sinni vinum og ættingjum. Ég þekkti Birnu ekki en hef tekið þetta mikið inn á mig eins og öll þjóðin hefur gert.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert