Polar Nanoq lætur bráðlega úr höfn

Grænlenski togarinn Polar Nanoq.
Grænlenski togarinn Polar Nanoq. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Útgerðarfyrirtækið Polar Seafood, sem gerir út togarann Polar Nanoq, hefur sent frá sér tilkynningu. Þar kemur fram að lögreglan hafi lokið störfum um borð í Polar Nanoq í tengslum við mál Birnu Brjánsdóttur og áætlað er að skipið láti bráðlega úr höfn.  

Stórum hluta áhafnarinnar hefur jafnframt verið skipt út. Hluti áhafnarinnar kaus að snúa heim í stað þess að halda aftur út á sjó.

Polar Seafood ætlar að vera yfirvöldum til reiðu varðandi aðstoð eða upplýsingar við rannsókn málsins.

„Atburðir síðustu daga hafa lagst þungt á áhöfn Polar Nanoq og aðra hjá Polar Seafood. Um leið getur útgerðin ekki borið ábyrgð á framferði og ákvörðunum einstaklinga sem ráða sig til starfa hjá því. Allir hjá Polar Seafood eru harmi slegnir yfir atburðum og fregnum síðustu daga og votta fjölskyldu og vinum Birnu Brjánsdóttur innilega samúð sína,“ segir í tilkynningunni.

Tilkynningin í heild sinni:

„Lögreglan á Íslandi hefur lokið störfum um borð í togaranum Polar Nanoq og gera áætlanir ráð fyrir að skipið láti bráðlega úr höfn.

Stórum hluta áhafnarinnar hefur verið skipt út, en hluti skipverja kaus að snúa aftur heim í stað þess að halda aftur á sjó. Áhöfnin er þakklát fyrir stuðning sem hún fékk í erfiðum aðstæðum á Íslandi.

Tveir skipverjar Polar Nanoq eru í haldi lögreglu á Íslandi grunaðir um saknæmt athæfi í tengslum við lát Birnu Brjánsdóttur. Þá er annar þeirra grunaður um smygl á umtalsverðu magni af hassi.

Rannsókn lögreglu á láti Birnu og fíkniefnafundinum um borð í skipinu heldur áfram og gengur vonandi hratt og vel fyrir sig. Polar Seafood er yfirvöldum til reiðu um hvers konar aðstoð eða upplýsingar vegna rannsóknanna, en beinir öllum fyrirspurnum vegna þeirra til lögreglu.

Atburðir síðustu daga hafa lagst þungt á áhöfn Polar Nanoq og aðra hjá Polar Seafood. Um leið getur útgerðin ekki borið ábyrgð á framferði og ákvörðunum einstaklinga sem ráða sig til starfa hjá því. Allir hjá Polar Seafood eru harmi slegnir yfir atburðum og fregnum síðustu daga og votta fjölskyldu og vinum Birnu Brjánsdóttur innilega samúð sína.

Við hjá Polar Seafood erum þakklát fyrir alla aðstoð á Íslandi á þessum erfiðu stundum. Sérstakar þakkir viljum við senda stjórnvöldum, utanríkisráðuneyti og lögreglu, danska sendiráðinu og sjálfboðaliðum björgunarsveita landsins.“

Undir tilkynninguna skrifar  Jørgen Fossheim, útgerðarstjóri hjá Polar Seafood.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert