Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu forsætisráðherra um að Sigurður Már Jónsson blaðamaður gegni áfram stöðu fjölmiðlafulltrúa ríkisstjórnarinnar.
Fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu, að Sigurður Már sé ráðinn til starfans á grundvelli 1. mgr. 22. gr. laga um Stjórnarráð Íslands og hefur aðsetur í forsætisráðuneytinu.