Tilboð opnuð í Dýrafjarðargöng

Frá Þingeyri við Dýrafjörð.
Frá Þingeyri við Dýrafjörð. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sjö verktakar sem sendu inn gögn vegna forvals útboðs vegna Dýrafjarðarganga hafa allir verið valdir til þess að taka þátt í því samkvæmt fréttatilkynningu frá Vegagerðinni. Tilboð í verkið verða opnuð í húsnæði Vegagerðarinnar að Borgartúni 7 í Reykjavík í dag klukkan 14:15. 

Fjórir af verktökunum hafa áður grafið jarðgöng á Íslandi eða vinna við það núna en þrír hafa ekki áður unnið við gangagerð hér á landi. Verktakarnir eru frá Danmörku, Tékklandi, Sviss, Noregi, Portúgal, Spáni og Ítalíu auk Íslands. Þar af eru fjórir með innlenda samstarfsaðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert