Ánægja ferðamanna á Íslandi dvínar

Ánægja ferðamanna af dvöl á Íslandi fer dvínandi að undanförnu.
Ánægja ferðamanna af dvöl á Íslandi fer dvínandi að undanförnu. mbl.is/Ómar

Ferðamannapúls Gallup lækkar um 2,1 stig milli mánaða og hefur aldrei mælst lægri. Einkunnin í desember var 80,6 stig af 100 mögulegum en var 82,7 stig í október, en púlsinn byggist á svörum ferðamanna við spurningum að Íslandsferð lokinni. 

Þetta kemur fram á vef Gallup.

Allir undirþættir Ferðamannapúlsins eru þar sagðir hafa lækkað milli mánaða.

Mest lækka þeir þættir sem snúa að því hvort Íslandsferðin hafi uppfyllt væntingar, hvort ferðin hafi verið peninganna virði sem og heildaránægja með Íslandsferðina, en einkunn á heildaránægjuþættinum fer í fyrsta sinn undir 80 stig.

Ánægðari með áramótin

„Þeir ferðamenn sem dvöldu hér á landi yfir jól og/eða áramót voru spurðir hvort það hafi uppfyllt væntingar þeirra að eyða jólunum/áramótunum á Íslandi,“ segir á vef Gallup.

„Um 21% sagði að það að eyða jólunum á Íslandi hafi að öllu leyti uppfyllt væntingar og tæplega 37% sögðu það hafa að miklu leyti uppfyllt væntingar þeirra. Naumlega 28% sögðu það hafa uppfyllt væntingar þeirra að einhverju leyti en tæp 15% sögðu að það hafi að litlu eða engu leyti uppfyllt væntingar þeirra.“

Fram kemur þá að rúm 48% hafi sagt það hafa að öllu leyti uppfyllt væntingar sínar að eyða áramótunum á Íslandi, og tæplega 34% sagt það hafa að miklu leyti uppfyllt væntingar.

Rúmlega 11% sögðu það hafa að einhverju leyti uppfyllt væntingar þeirra en tæplega 6% sögðu að ferðin hafi að litlu eða engu leyti uppfyllt væntingar þeirra.

Sjá vef Gallup

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert