Ríkissáttasemjari hefur hafið undirbúning á mörgum af þeim verkefnum sem eru framundan á árinu. Ýmis mál eru á borði ríkissáttasemjara núna en fjölmargir samningar losna síðan á næstunni.
Má þar til dæmis nefna samning ríkisins við Læknafélag Íslands sem rennur út 30. apríl næstkomandi. Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari segir embættið byrjað að huga að viðræðum við Læknafélagið.
„Aðilarnir eru ekki byrjaðir að tala saman formlega en ég hef aðeins rætt við þau og við erum að byrja á okkar undirbúningi,“ segir hún. Síðar á árinu rennur síðan út samningur ríkisins við Skurðlæknafélag Íslands en sá samningur var gerður um svipað leyti og rennur út í ágúst 2017. Stærsta verkefni ársins hjá embættinu mun að öllum líkindum koma í ágúst en þá rennur út Gerðardómur BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.