Sjö fluttir á slysadeild

mbl.is/Þórður

Sjö voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir umferðarslysið sem varð á Biskupstungnabraut við afleggjarann að Búrfellsvegi, laust fyrir klukkan 15.

Frétt mbl.is: Árekstur á Biskupstungnabraut

Einn hinna sjö er nokkuð slasaður, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi, sem segir að fólkið sé í mismunandi ástandi. 

Tveir jeppar lentu í árekstri við afleggjarann. Ökumaður þriðja bílsins, sem var einn í bílnum, kom þá aðvífandi en tókst að aka út af til að afstýra stærra slysi.

Lögreglan lokaði Biskupstungnabraut vegna slyssins en verið er að klára vinnu á vettvangi og verður vegurinn opnaður innan skamms.

Frétt mbl.is: Einn yfir nótt vegna bílslyss

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert