Minntust þess að 75 ár eru liðin frá árásinni á herskipið Alexander Hamilton

Dave Downey um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar í gær með …
Dave Downey um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar í gær með hina sérstöku minningarmynt í hendi.

Með aðstoð Landhelgisgæslunnar varpaði Dave Downey, bandarískur landgönguliði og formaður samtakanna Families of the Alexander Hamilton, gullslegnum minningarpeningi í hafið í gær til minningar um þá bandarísku sjóliða sem fórust á skipinu USCGC Alexander Hamilton WPG 34.

„Það er mikill heiður að fá að gera þetta í samvinnu við Landhelgisgæsluna, sem hefur verið einstaklega hjálpsöm og velviljuð okkur,“ segir Downey í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Liðin eru 75 ár síðan skipið varð fyrir tundurskeyti frá þýskum kafbáti skammt vestur af Garðskaga. Downey er systursonur eins þeirra sem fórust með skipinu.

Landhelgisgæslan flaug með Dave Downey yfir flak Alexander Hamilton.
Landhelgisgæslan flaug með Dave Downey yfir flak Alexander Hamilton. Ljósmynd/Jón Páll Ásgeirsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert