VG fordæma ákvörðun Trump

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG. mbl.is/Eggert

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fordæmir lokanir landamæra og brot á ferðafrelsi gagnvart sérstökum trúarhópum frá tilteknum löndum. Þingflokkurinn hvetur íslensk stjórnvöld til að koma andmælum við ákvörðun Bandaríkjaforseta skýrt á framfæri.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá þingflokknum. Eins og áður hefur komið fram munu Bandaríkin ekki taka á móti flóttafólki næstu 120 eftir tilskipun Donald Trump, Bandaríkjaforseta, frá því á föstudag. Auk þess munu rík­is­borg­ar­ar frá sjö ríkj­um, þar sem múslim­ar eru í meiri­hluta, ekki fá banda­ríska vega­bréfs­árit­un næstu þrjá mánuði. 

„Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fordæmir hvers kyns lokun landamæra og brot á ferðafrelsi gagnvart sérstökum trúarhópum frá tilteknum löndum og gagnvart flóttafólki frá Sýrlandi, líkt og forsetatilskipun Bandaríkjaforseta frá því á föstudag felur í sér. Þingflokkur VG hvetur íslensk stjórnvöld til að koma andmælum við ákvörðun Bandaríkjaforseta skýrt á framfæri við bandarísk stjórnvöld með formlegum hætti og halda með því á lofti grundvallarvirðingu fyrir frelsi, lýðræði og mannréttindum,“ segir í yfirlýsingu VG.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert