Fjölga í samráðshópi og skipta um formann

Í bú­vöru­lög­um, sem samþykkt voru á Alþingi í sept­em­ber á …
Í bú­vöru­lög­um, sem samþykkt voru á Alþingi í sept­em­ber á síðasta ári, er kveðið á um að skipaður verði sam­ráðshóp­ur um end­ur­skoðun bú­vöru­samn­inga. mbl.is/Styrmir Kári

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur breytt skipan samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga, „með það fyrir augum að stuðla að meiri sátt og víðtækara samkomulagi um frekari uppbyggingu íslensks landbúnaðar,“ eins og það er orðað í fréttatilkynningu.  „Sérstaklega er horft til þess að auka vægi umhverfis- og neytendasjónarmiða í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.“

Svanfríður Jónasdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar og fyrrverandi alþingismaður, verður formaður hópsins. Í fyrri hópnum, sem skipaður var í nóvember, var Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir formaður. Níu af þeim tólf sem voru í fyrri hópnum eru enn í þeim sem nú hefur verið skipaður. Meðal þeirra sem ekki er lengur í hópnum er Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður.

Fulltrúum í hópnum er nú fjölgað úr tólf í þrettán. Umhverfisráðherra tilnefndir einn fulltrúa og Félag atvinnurekenda einn, til viðbótar þeim sem þegar voru skipaðir samkvæmt tilnefningu. Þá hefur skipan þriggja fulltrúa af fimm sem fyrri ráðherra skipaði án tilnefningar verið afturkölluð. Í þeirra stað hefur ráðherra skipað Brynhildi Pétursdóttur, fyrrverandi alþingismann og starfsmann Neytendasamtakanna og Svanfríði Jónasdóttur.

„Það er mat ráðherra að mikilvægt sé að víðtæk samvinna og sátt náist við breytingar á búvörusamningi og búvörulögum. Í stjórnarsáttmála segir m.a. „… að við þessar breytingar verði lögð áhersla á hagsmuni og valfrelsi neytenda og bænda. Áfram verði tryggð framleiðsla heilnæmra, innlendra afurða í umhverfisvænum og samkeppnishæfum landbúnaði.“  Breið aðkoma hagsmunaaðila við endurskoðun búvörusamnings er því nauðsynleg. Er miðað við að endurskoðun ljúki eigi síðar en árið 2019,“ segir í fréttatilkynningu ráðuneytisins um skipan hópsins.

Nýjan samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga skipa:

·        Svanfríður Jónasdóttir, formaður (skipuð af ráðherra)

·        Brynhildur Pétursdóttir (skipuð af ráðherra)

·        Elín Margrét Stefánsdóttir (skipuð af ráðherra)

·        Jóna Björg Hlöðversdóttir (skipuð af ráðherra)

·        Þórunn Pétursdóttir (Umhverfisráðherra)

·        Páll Rúnar Mikael Kristjánsson (Félag atvinnurekenda)

·        Róbert Farestveit (Alþýðusamband Íslands)

·        Ólafur Arnarsson (Neytendasamtökin)

·        Andrés Magnússon (Samtök atvinnulífsins)

·        Sindri Sigurgeirsson (Bændasamtök Íslands)

·        Björgvin Jón Bjarnason (Bændasamtök Íslands)

·        Elín Heiða Valsdóttir (Bændasamtök Íslands)

·        Helga Jónsdóttir (Bandalag starfsmanna ríkis og bæja)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert