Hagþenkir tilnefnir tíu rit

Tíu rit eru tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis 2016.
Tíu rit eru tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis 2016. Mynd/Hagþenkir

Tíu rit eru tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna. Félagið kynnti tilnefningarnar í Grófarhúsi við Tryggvagötu í dag.

Tilnefningarnar voru kynntar í samstarfi við Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Borgarbókasafnið en Viðurkenning Hagþenkis 2016 verður veitt í Þjóðarbókhlöðunni um mánaðamótin febrúar og mars. Verðlaunin nema einni milljón króna

Hagþenkir hafa veitt viðurkenninguna frá árinu 1986 en árið 2006 var tekin upp sú nýbreytni að tilnefna tíu höfunda og bækur sem kæmu til greina. Fimm manna Viðurkenningarráð stendur að valinu og að þessu sinni er ráðið skipað þeim Baldri Sigurðssyni, Guðnýju Hallgrímsdóttur, Kristni Hauki Skarphéðinssyni, Sólrúnu Harðardóttur og Þórunni Blöndal.

Hagþenkir og Borgarbókasafnið standa fyrir kynningu á tilnefndum verkum á Degi bókarinnar 23. apríl.

Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis 2016

Ársæll Már Arnarsson. Síðustu ár sálarinnar. Háskólaútgáfan.

Fléttað er saman á líflegan hátt hugmyndum ólíkra fræðigreina um sálina, allt frá Forn-Grikkjum til vorra daga.

Bergsveinn Birgisson. Leitin að svarta víkingnum. Bjartur.

Ævintýraleg saga Geirmundar heljarskinns lifnar í samspili við fræðilega rannsókn höfundar og úr verður nýstárleg og trúverðug frásögn.

Elín Bára Magnúsdóttir. Eyrbyggja saga. Efni og höfundareinkenni. Bókmennta- og listfræðistofnun Háskóla Íslands, og Háskólaútgáfan.

Aðgengileg greining á flókinni sögu og höfundi hennar er sett í samhengi við valdabaráttu þjóðveldisaldar.

Garðar Gíslason. Á ferð um samfélagið. Þjóðfélagsfræði. Menntamálastofnun.

Vel ígrundað námsefni sem hvetur nemendur til að nota fjölbreyttar heimildir og hugsa á gagnrýninn og skapandi hátt.

Guðrún Ingólfsdóttir. Á hverju liggja ekki vorar göfugu kellíngar. Bókmenning íslenskra kvenna frá miðöldum fram á 18. öld. Háskólaútgáfan.

Ítarlegt verk um lítt kannað efni sem varpar ljósi á sambúð kvenna og bóka á miðöldum.

Helgi Hallgrímsson. Fljótsdæla. Mannlíf og náttúrufar í Fljótsdalshreppi. Skrudda.

Af alúð og víðtækri þekkingu er fléttað saman sögu, náttúru og mannlífi í Fljótsdal. Vandað og ríkulega myndskreytt verk.

Hrefna Róbertsdóttir og Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir (ritstj.). Landsnefndin fyrri 17701771. Den islandske Landkommission 17701771, I og II. Þjóðskjalasafn Íslands. Sögufélag.

Einstaklega vönduð útgáfa á frumheimildum um íslenskt samfélag á 18. öld. Ítarlegur inngangur, orðskýringar og vefsíða gefa verkinu aukið gildi.

Steinunn Knútsdóttir. Lóðrétt rannsókn. Ódauðleg verk Áhugaleikhúss atvinnumanna 20052015. Listaháskóli Íslands og Háskólaútgáfan.

Óvenjuleg innsýn í hugmyndafræði um leikhús og hvernig unnið er að leikverkum frá fyrstu hugmynd til sýninga.

Viðar Hreinsson. Jón lærði og náttúra náttúrunnar. Lesstofan.

Með nærfærnum hætti er fjallað um ævintýralegt lífshlaup manns á mörkum forneskju og nútímafræða í samhengi við evrópska vísindasögu.

Úlfhildur Dagsdóttir. Sjónsbók. Ævintýrið um höfundinn, súrrealisma og sýnir. JPV.

Fjallað er af þekkingu og innsæi um verk sérstæðs höfundar og ferillinn tengdur við lífssýn hans og stefnur í listum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert