Yfirburðasigur Röskvu

Röskva hafði betur í kosningum til Stúdentaráðs.
Röskva hafði betur í kosningum til Stúdentaráðs. mbl.is/Sigurður Bogi

Úrslit kosninga til Stúdentaráðs Háskóla Íslands fóru á þann veg að Röskva bar sigurorð af Vöku - félagi lýðræðissinnaðra stúdenta. Þetta varð ljóst eftir að úrslit voru tilkynnt seint í gærkvöldi. Í kosningunum fékk Röskva 18 fulltrúa kjörna en Vaka 9.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá kjörstjórn Stúdentaráðs Háskóla Íslands en um viðsnúning er að ræða frá því fyrir ári síðan þegar Vaka hlaut 17 kjörna fulltrúa en Röskva 10. Röskva hefur ekki haft meirihluta í Stúdentaráði síðan 2008-2009.

Kosningar til Stúdentaráðs stóðu yfir á þriðjudag og miðvikudag en í þeim voru fulltrúar kosnir á þeim sviðum sem þeir stunda nám. Sviðin fimm eru félagsvísinda-, hugvísinda-, menntavísinda-, heilbrigðisvísinda-, og verkfræði og náttúruvísindasvið. Á hverju sviði eru fimm stúdentaráðsliðar en á félagsvísindasviði, sem jafnframt er fjölmennasta sviðið, eru þeir sjö. Saman mynda sviðsráðin Stúdentaráð Háskóla Íslands. Röskva hlaut meirihluta á öllum sviðum fyrir utan menntavísindasvið.

Alls voru 13.227 nemendur Háskóla Íslands á kjörskrá en 5.346 greiddu atkvæði í kosningunum. Heildarkjörsókn í kosningunum til Stúdentaráðs var því 40,42% sem er svipuð kjörsókn og undanfarin ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert